09febrúar

09.02.09

Í dag er dagurinn sem ég á eftir að muna alltaf eftir, dagurinn þar sem ég missti allavega 50kg af áhyggjum, dagurinn þegar Lars læknir hringdi og sagði mér að drengurinn minn væri næstum laus allra mála, yndislegur dagur :)
Ég á aldrei eftir að geta lýst hvernig mér líður, gæti aldrei fært það í orð.

Ég er allavega hamingjusöm, ég er svo ánægð fyrir ungans hönd.

"Bara" rannsóknir 1x á ári hér eftir!
09. febrúar 2009 klukkan 13:21
Pandran
1 athugasemd
15janúar

Ástkær lánsfósturjörð or something ;)

Komin heim í land eyðublaða :) Mikið var ég glöð að sjá heimilið mitt, er viss um að það hefur orðið fallegra rétt á meðan ég fór.

Klakaferðin var frábær, hitti ættingja og vini, gaf knús, var knúsuð, fékk hjálp frá góðu fólki, fór í matarboð, fór í heimsóknir, fór í jólaboð, fór á rúntinn, tók myndir,drakk áfengi, át ruslmat, át fisk og drakk íslenskann eðal vatnssopa.

Best af öllu var að ég fékk læknishjálp fyrir ungann minn og honum líður mikið betur :D



15. janúar 2009 klukkan 13:09
Pandran
1 athugasemd
18desember

Ástkær fósturjörð

Yndislegt að vera komin til Íslands, bara frábært :) Samt er furðulegt að Svíþjóð er heim, er alveg sátt við að vera hérna í heimsókn og fara síðan aftur heim. Eina sem ég sé eftir er fólkið mitt en það hefur nú verið ótrúlega duglegt að koma út og ég vona að það haldist.

Ætla ekkert að ljúga neitt, þessir dagar hafa verið hunderfiðir, unginn litli ekki sáttur við breytingarnar og þetta hefur allt tekið á en hann vonandi fer að taka fólkið sitt í sátt. Ég sjálf datt örlítið niður, var búin að sjá það fyrir mér eftir 8 mánaða erfiði að fá smá tíma, tíma til að vera ein með sjálfri mér, tíma til að sinna elstu og mið og gefa þeim smá kvalití tæm en það hefur ekkert orðið úr því. Hlakkaði svo til að fá hjálp með ungann en það er ekkert hægt að gera þegar að barnið grætur bara og öskrar.
Ég sjálf auðvitað með óraunhæfar væntingar, hann hefur aldrei komið hingað, þekki ekki ömmur sínar og afa en samt var ég ekki búin að sjá þetta fyrir mér og því varð ég frekar dauf.
Elsku litli unginn minn, að vera svona er honum eflaust líka mjög erfitt og því ætla ég með hann til læknis hérna heima. Fá annað álit, svör og útskýringar á íslensku frá íslensku fagfólki. Ég neita að trúa því að lítið barn mæti bara í heiminn ósáttur í sínu eigin skinni, vonandi er þetta samt bara eitthvað sem vex af honum um leið og hann er sáttur við að slíta naflastrenginn. Mamman lifir þetta alveg að enda með frábært fólk í kringum mig :) En mér finnst það afskaplega erfitt að horfa á litla sæta ungann minn oftar en ekki svona óhamingjusaman.

Þetta átti nú ekki að verða væliblogg, ég hef bara svo lengi verið að halda því inní mér hvernig mér líður. Engum sagt og segi alltaf allt gott. Minn heittelskaði er sá eini sem hefur einhverja hugmynd og hann veit samt ekki helminginn. Kannski er ég með fæðingarþunglyndi, hver veit. Ég held að þetta sé bara vanmáttar tilfinning sem hellist yfir mig þegar að lillemann á svona erfitt, erfitt að sé svona pirraður og geta ekkert gert fyrir hann.
Ekki halda samt að allir dagar séu slæmir, allir dagar eru verkefni en sumir verri en aðrir.

Miðjan er svo sátt :) Henni finnst þetta allt saman æðislegt, labbaði inn hjá ömmum sínum og öfum eins og hún hafi aldrei farið. Jafnvel sáttari en áður en hún fór (enda stærri og þroskaðri) svo glöð og ánægð. í dag hefur hún samt beðið oft um að fá að fara heim blessunin en það er bara því við erum heima því unginn er slappur.
Í gær þá bað hún mig um margar bækur og ég sagði henni að kíkja í dótakassann í stofunni því þar væru blöð. Þá stóð hún svolitla stund á ganginum, kíkti í kringum sig og sagði "Hvar er herbergið mitt? Mamma ég finn ekki herbergið mitt!" Hahahhahahaha hún er mesta krútt í geiminum ;) Spyr um pabba sinn á hverjum degi og bíður eftir að hann komi, stundum vill hún samt bara fara heim til hans.

Elstan er yndisleg, hjálpar mér sem kann illa eða ekkert að vera einstæð mamma og stendur sig rosalega vel. Hún var fljót til bestu bestu vinkonu og eyðir þar flestum dögum. Í dag á síðan að fara að unglingast með "frænkunni" sem er 15 ára :) Hún hafði samt orð á því við mig að henni fyndist skrýtið að vera á Íslandi, Svíþjóð væri meira "heima". Hún er samt afskaplega glöð hérna og hlakkar til jólanna. Við foreldrarnir ákváðum loksins gjöf handa henni, eitthvað sem hefur lengi verið suðað um.

Hey já, ég fór í 1 próf af 3. Ætlaði í 2 en það gekk ekki upp. Núna er ég hinsvegar búin að ljúka fyrstu 3 einingunum í framhaldsskóla og fékk 8 í ENS103 - sem er svo hræðilega létt að já. (fékk samt ekki 10 hahahha) Með þessum hraða þá ætti ég að útskrifast eftir hva 10 ár?

Pandran sem á ENNÞÁ eftir að kaupa margar margar jólagjafir ;)
18. desember 2008 klukkan 13:43
Pandran
3 athugasemdir
09desember

Það líður að heimför og jólum!

4 dagar í að ég fari heim til Íslands! Fjúff, ég er svo spennt að mér er illt í maganum :)

Æji ég er agalega slakur bloggari, var alveg í gírnum en svo gerist ekki neitt. Kannski verð ég duglegri árið 2009 eða 2010. Þakka fyrir að ég borga ekki fyrir bloggið, annars væri ég styrktaraðili hér eins og í ræktinni *roðn*

Hafið það dúndur gott um jólin og áramót og auðvitað allt árið 2009 - það er eða segja ef einhver kíkir á þetta blogg lengur?

Knús, kossar og meira knús


09. desember 2008 klukkan 12:37
Pandran
1 athugasemd
18október

Bloggsmoggtogglogg

Allt í einu mundi ég eftir að ég ætti blogg, ég ætti kannski að nýta mér það.

Í gær 17/10 voru liðin 10 ár frá því að Minn heittelskaði bað mig um að byrja með sér, sætur :)

Á þessum 10 árum höfum við:

Eignast 3 ótrúlega vel heppnuð börn.
Trúlofast 3x - síðast 27/7/03
Keypt og selt 3 íbúðir.
Farið saman til útlanda 5x að undanskyldum flutningum út.
Flutt til Svíþjóðar.
Ætlað að gifta okkur.
Hætt við að gifta okkur.
Farið í sumarbústaðaferðir.

Og svo margt og mikið meira :) Eigum líka helling eftir, mikið hlakkar mig til.

Annars er lífið í Lundi svo ljúft, mér líður alltaf betur og betur hérna úti. Langar ekkert heim aftur í bili nema bara í heimsókn, sakna ættingja og vina sakna lyktarinnar á Íslandi, sakna vatnsins og sakna matarins (enda finnst mér ekkert leiðinlegt að borða)

Komum til Íslands 13 des og undurfagra frænla mín hún Hafdís ætlar að lána okkur íbúðina sína og frábæri litli bróðir minn ætlar að lána okkur bíl - Takk æðislega bæði tvö:)

Jæja ungi litli heimtar skemmtun, best að deliver annars þenur hann raddböndin...

18. október 2008 klukkan 13:43
Pandran
1 athugasemd
17september

Ding dong sagði..

...lítill grænn froskur einn dag.

Ég fór í ræktina í morgun með Helgu, já í morgun. Vorum sko mæta 15 mín í 8 eða 07:45 eða á þeim tíma sem maður á að vera undir sæng eða allavega á náttfötunum.
Áttum tíma pantaða hjá instuctor til að setja upp "hrista rassinn" plan og kennslu á tækin. Ég er ekkert að ljúga þegar ég segi ÁI ef ég er með strengi í dag þá vil ég helst sleppa morgundeginum, ungi litli verður bara að bjarga sér sjálfur því mamman getur ekki borið hann.

Það hefur margt og mikið gerst síðan á afmælinu mínu, ég nenni bara ekki að rifja það upp. Allt í góðu, allir hressir nema þá ungi litli tannálfur og jú ég er komin á fullt í fjarnám :)

Jæja best að ofreyna sig ekki, það er nefnilega badminton í kveld og ég þarf að nota hendurnar í það.



17. september 2008 klukkan 10:31
Pandran
1 athugasemd
27júlí

Ammæli!

Ég á ammæli í dag, ég á ammæli í dag, ég á ammæli í daaaaaag, ég á ammæli í dag! Veiiiii :D

365 skemmtilegir dagar þangað til að ég verð ÞRÍTUG, hugsið ykkur. Ég sem er ennþá bara stelpa.


Minn heittelskaði og börn gáfu mér þvílíkt flott hjól með körfu og alles. Fór og hjólaði í búðina í gær, var búin að gleyma hvað það tekur á í lærunum að hjóla - sérstaklega með yfirvigt ;)
Mottóið er að núna er hjóla í 30 mín á hverjum degi lágmark.

Knús og kossar - ætla að baka fyrir mig ammælisköku á eftir.
27. júlí 2008 klukkan 06:05
Pandran
5 athugasemdir
05júlí

Dramatík

Hér með er það ákveðið, ef að minn heittelskaði ákveður á einhverjum tímapunkti að skilja við mig þá er svarið NEI!

Fyrsti dagurinn sem einstæð móðir gekk furðu vel með 3 mánaða, 2 og hálfs árs og þrjár 11 ára skvísur, allt virtist ganga upp. Ég meira segja eldaði hrísgrjónagraut sem tókst vel - ég var eiginlega montin þegar ég fór loksins að sofa.
Dagur 2 gekk ekki nógu vel - 11 ára skvísurnar tóku hvert dramakastið á fætur öðru og herra 3 mánaða taldi það óþarft að sofa, engann skal það undra því ég montaði mig svo agalega af honum deginum á undan.
Loksins þegar búið var að gefa skaranum að borða, róa enn eitt dramað hjá 11 ára skvísunum þá fór fröken 2 ára fljótlega í rúmið sitt sæl og glöð. Stuttu eftir það ákvað herra 3 mánaða að sofna líka, ég var þvílíkt ánægð og andaði léttar að fá smá breik.
Hmmmm fröken 2 ára spjallaði og spjallaði inní herbergi svo mig grunaði hana um nr2 - fór inní herbergi og ætlaði að sækja hana þegar ég sé mér til mikillar kátínu að hún hefur ákveðið að maka nr2 á rúmið sitt, náttfötin sín og hendurnar sínar *dæææææs*
Var að spá í að banka hjá nágrannanum og segjast hafa fundið hana :Þ

Síðan kom ég þeirri stuttu í rúmið eftir sótthreinsiaðgerðir og hún sagði "mamma verra snjorgmædd" sem þýðir að ég verð sorgmædd ef hún er að klína kúk útum allt. Jeiii LOKSINS smá breik, reyndar í bland við endalaus heimilisstörf en hey enginn allavega grátandi hjá mér.
Ég var ekki lengi í þeirri paradís því upp kom ENN EITT dramað með 11 ára skvísur - endaði með því að skutla þeim í bælið og fara út á svalir og argast í mömmu.
Greyið mamma - hún hafði ekkert gert en fékk samt reiðilesturinn, honum var reyndar ekki beint að henni :)

Skutlast síðan uppí rúm á miðnætti eftir að herra 3 mánaða hafði vaknað, vælt og fengið að drekka. Horfði á hann í djúpum fallegum svefni og hugsaði með mér hvað hann væri yndislega fallegur og friðsæll.

Hann var vaknaður 45mín seinna - skemmst er frá því að segja að ég fékk kannski 3 tíma svefn í svona 5 mínútna hollum og var komin á fætur fyrir 6 í morgun. Loksins þegar hann fór að geispa þá er gólað innan úr barnahergi "Góann dæinn mamma mín"


Help me!
05. júlí 2008 klukkan 09:58
Pandran
3 athugasemdir
29júní

Margt er skrýtið í kýrhausnum

Greyið nágrannarnir mínir, það á ekki af þessum góðu námsmönnum að ganga!

Þegar við fluttum fyrir ofan þau þá voru þau svo glöð því hérna höfðu búið nokkrir einstæðir námsmenn sem höfðu gaman af tónlist og eflaust einstaka gleðskap. Þau voru því mjög ánægð að fá fjölskyldufólk í íbúðina sögðu þau við minn heittelskaða.

Áðan kl rétt um 19 er bankað...


Hæ, ég er nágranni þinn.
Uhhhh já Hæ
Ég hef tekið eftir því að það eru of mikil læti í börnunum þínum (þau hoppa víst of mikið og labba of fast á gólfinu)
Uhhhh já
Við erum sko námsmenn
Uhhhh já *ræskj* Héddddddna ég skal reyna að fá fröken 2 ára til að skilja krísuna þína kæri nágranni.


Vilborg (sem er óþekki hlutinn af mér) vill endilega fara í hælaskó og fara í hoppudansikeppni með fröken 2 ára en minn heittelskaði telur það ekki ráðlagt.
Pandran er ennþá með hökuna á gólfinu og dregur hana á eftir sér.... Ég meina er verið að meina þetta eða kemur hún á morgun og segir DJÓÓÓÓK ;)
29. júní 2008 klukkan 19:37
Pandran
2 athugasemdir
05júní

Sól sól skín á mig!

Hver þarf sólarlandaferð þegar maður býr í Suður Svíþjóð! Yndislegt alveg, nema þegar það kom 28 stiga hiti einn daginn og það blés ekkert. Þá var ég eflaust nálægt því að kafna takk fyrir.
Sat úti með Grétu í fyrrakvöld og það var svo hlýtt og notalegt :) Elska þetta veðurfar hérna, geta farið út með stelpunum á hverjum degi og þurfa rétt að skella þeim í kjól og sandala, já og auðvitað sólarvörn.

Lífið gengur bara sinn vanagang, ungi litli er orðinn 2 mánaða pjakkur og braggast aldeilis vel hjá Ljómalind mömmu sinni :) Var í skoðun á þriðjudag orðinn 6340gr og 59 og hálfur cm. Eftir að hafa lesið um þennann sjúkdóm sem hann er með þá erum við svakalega heppin að hann sé að þrífast svona vel :)
Svo er næsta aðgerð á þriðjudaginn svo þið megið alveg hugsa til okkar þá.

Annars er lítið að segja, mér fannst hræðilegt hvernig staðið var að ísbjarnarmálunum á Íslandi. Skelfilegt að drepa svona fallegt villt dýr án þess að reyna eitthvað annað fyrst, það þarf að koma upp almennilegum vinnureglum þó að þetta sé sjaldgæft því þessi dýr eru svo verðmæt.


Heyrðu jú við erum flutt og búin að vera í nýju íbúðinni í viku :) Gekk alveg svakalega vel að flytja því hingað mættu galvaskir örugglega nálægt 10 karlmenn sem eru nágrannar okkar og tæmdu íbúðina ALVEG. Við vorum búin að fara með eitthvað dót um daginn og ég var búin að taka stóru hlutina svo þeir ættu auðvelt með að taka þá en síðan þá já tæmdu þeir ALLT :) Við erum að tala um dömubindin mín og allt frá baðherberginu, ísskápinn og frystinn, allar skúffur og skápa. Ég er þakklát að ég hafi verið sjálf búin að tæma nærfataskúffuna mína og hjálpartækjakassa :Þ

Hahahahaha þótt ég hafi roðnað þá er ég þeim samt svo þakklát, það er þvílíkur munur að þekkja svona hjálpsamt fólk og það stendur til að halda þrusupartý einhvern tímann í sumar til að þakka þeim fyrir og auðvitað þakka konunum þeirra fyrir "lánið" á þeim :)
05. júní 2008 klukkan 08:35
Pandran
6 athugasemdir

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...